Áshamar 50, Hafnarfirði

Væntanlegt í sölu 2025

Þarfaþing er að reisa 40 íbúða fjölbýli ásamt 800fm verslunarkjarna á jarðhæð í Hamraneshverfi í Hafnarfirði. Vandaðar íbúðir á góðum stað ásamt bílastæði í lokuðum bílakjallara.

Heildarlausnir á byggingarmarkaði síðan 1993

Félagið hóf starfs sitt 1993 aðallega sem viðhaldsþjónusta fyrir Hagkaup og tengd félög. Með nýju fólki breytast áherslur og árið 1998 fór félagið að taka þátt í almennum útboðsmarkaði. Þetta var stórt skref að stíga á sínum tíma. Í framhaldi af því fóru verkefnin stækkandi ár frá ári og 2001 var stigið enn eitt skref og reisti félagið þá 5 eininga raðhús í Grafarholti og svo var ráðist í byggingu fjölbýlishúss í Urriðaholti árið 2015 og því næst reist hvert fjölbýlishúsið á fætur öðru ásamt þeim útboðsverkefnum sem félagið hneppir hverju sinni sem eru orðin mikill fjöldi í gegnum árin.

Af hverju Þarfaþing ?

Afhent á umsömdum tíma

Starfsfólk Þarfaþings leggur allan sinn metnað í hvert verk því tími viðskiptavina okkar er dýrmætur. Þess vegna leggjum við hjá Þarfaþingi höfuðáherslu á að áætlanir okkar standist og skilum verkum okkar ávalt á umsömdum tíma.

Áralöng framúrskarandi reynsla

Þarfaþing hefur hlotið viðurkenningu frá Creditinfo sem framúrskarandi fyrirtæki frá árinu 2012 til 2023. Þá viðurkenningu hljóta aðeins fyrirtæki sem standast styrkleikamat Creditinfo og uppfylla ströng skilyrði við greiningu.

Öflugir verktakar

Þarfaþing hf. er meðal traustustu verktaka landsins. Við höfum á að skipa öflugu stjórnendateymi með fjöldann allan af öflugustu undirverktökum landsins. Þessir verktakar hafa unnið fyrir Þarfaþing í áraraðir. Það er ekki sjálfgefið að hafa svo traust teymi sem vinnur hvert verkefnið á eftir öðru án hnökra.
Þess vegna er rétt að velja Þarfaþing hf.

Nýlegar fréttir

Leikskóli Hamranesi

Leikskóli Hamranesi

Þarfaþing hf. hefur skrifað undir samning við Hafnarfjarðarbæ og hafist handa við uppbyggingu á sex deilda leikskóla við Áshamar 9 í Hamraneshverfinu. Leikskólinn sem verður um 1.200m2 að stærð verður byggður upp með Moduels timbureingnum og eru verklok áætluð í...

FRÉTTIR ÚR URRIÐAHOLTINU

FRÉTTIR ÚR URRIÐAHOLTINU

En og aftur þökkum við gríðarlega góð viðbrögð við söluni á Hraungötu 23. Nú eru allar 13 íbúðir hússins seldar.  Utanhúss er það að frétta að klæðning hússins er á loka metrunum og lóðafrágangur hafin að fullum krafti. Vinnan gengur mjög vel í húsinu en í lok síðustu...

URRIÐAHOLTSSTRÆTI 28

URRIÐAHOLTSSTRÆTI 28

Þarfaþing byggði glæsilegt 12 íbúða fjölbýlishús í Urriðaholtinu Garðabæ.